Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi
Auglýsing

Mynd: Inter

Mynd: Inter
Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli.
Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp völlinn.

Fyrsti gestur Kaffispjallsins er ekki af verri endanum en Cecilía Rán er aðalmarkvörður íslenska landsliðsins og spilar með stórliði Inter á Ítalíu.
Í þættinum fer hún yfir uppvaxtarár sín hér á landi, hvernig það var að spila með meistaraflokki þegar hún var rétt orðin táningur og margt annað.
Þar á meðal má nefna gríðarlega stutt stopp hjá Everton sem og tímann hjá Bayern München. Farið var yfir há- og lágpunkta á ferlinum, meiðslin sem höfðu gríðarleg áhrif á tíma hennar í Þýskalandi sem og margt annað.
Þar á meðal hvaða samherja í landsliðinu hún myndi vilja sjá keppa í Survivor. Þátturinn er í umsjón Runólfs Trausta, íþróttablaðamanns og markmannsþjálfara.