Hafa akkúrat enga trú á Vestra í dag

Af æfingu Vestra í Bakú í gær.

Mynd: Vestri

Emil líklegastur til að skora gegn Víkingi í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Af æfingu Vestra í Bakú í gær.

Mynd: Vestri
Tveir Evrópuleikir hjá íslenskum liðum fara fram í dag. Vestri mætir Qarabag í Bakú klukkan 16:00 að íslenskum tíma og er sá leikur í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Klukkan 19:00 tekur svo Stjarnan á móti Víkingi Götu á Samsungvellinum í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Um fyrri leiki liðanna í 1. umferð forkeppnanna er að ræða og verða leikirnir í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

TENGT EFNI
Vestri á leið til Bakú - „Eins gott og það getur orðið"
Epicbet hefur akkúrat enga trú á öðru en að Qarabag vinni á eftir, og eðlilega. Qarabag fór í umspil um að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra á meðan Vestri spilar í Lengjudeildinni á Íslandi. Stuðullinn á sigur Qarabag er 1,00 og er ekki hægt að veðja á sigur liðsins sem stendur. Stuðullinn á jafntefli er 15,25 og 41,50 er stuðullinn á sigri Vestra. Stuðullinn á því að Vestri skori í Aserbaísjan er 2,45. Breki Þór Hermannsson er líklegasti markaskorari Vestra samkvæmt Epicbet.
Stjarnan er þá talið líklegra liðið gegn Færeyingunum. Stuðullinn á því að Stjarnan sigri Víking Götu er 1,69, stuðullinn á jafntefli er 4,33 og 3,60 er stuðullinn á sigri Víkings. Fyrirfram er búist við því að bæði lið skori og Emil Atlason er talinn líklegasti markaskorarinn.