23.10.26 - 11:46
Elvar Geir Magnússon
Conte segist ekki vera í neinum viðræðum

Antonio Conte stýrð síðast Napoli.

Mynd: EPA

Antonio Conte stýrð síðast Napoli.

Mynd: EPA
Ítalinn Antonio Conte hefur verið orðaður við stjórastarf Manchester United en staða Michael Carrick er talin mjög óörugg.
Conte, sem er án starfs, segir í yfirlýsingu sem hann birti á Instagram að hann sé ekki í neinum alvöru viðræðum sem stendur. Hann nefnir ekki Manchester United í yfirlýsingunni.

„Í kjölfar fréttaflutnings í fjölmiðlum tel ég rétt að skýra afstöðu mína. Nafn mitt hefur verið orðað við fjölda félaga, en engar viðræður eru komnar á langt stig," segir Conte.
„Eftir frábæran og farsælan tíma sem stjóri Napoli ætla ég að gefa mér þann tíma sem þarf til að íhuga hvernig og hvenær ég sný aftur í þjálfun. Þetta verður vel ígrunduð ákvörðun sem ég tek þegar ég tel að aðstæður séu réttar."
„Ég hef séð fréttir um fjárhagslegar kröfur og kröfur um fullt vald – sem ég á að hafa sett fram við einhver félög. Þessar fréttir eiga sér enga stoð í raunveruleikanum, enda er enginn raunverulegur grundvöllur fyrir slíkum fullyrðingum. Allar getgátur um kröfur mínar og framtíð í starfi er einungis orðrómur."
Conte hefur á stjóraferlinum unnið titla með Juventus, Chelsea, Inter og Napoli.