Lengjudeild kvenna: Grótta að stinga af - Selfoss vann KR

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Hrefna Morthens

Mynd: FHL

Það fóru þrír leikir fram í Lengjudeild kvenna í kvöld þar sem Grótta heimsótti Hauka í toppbaráttunni og skóp dýrmætan sigur.
Staðan var jöfn langstærsta hluta leiksins í Hafnarfirði. Hún hélst markalaus þar til Kristín Sara Arnardóttir náði forystunni en Rakel Lilja Hjaltadóttir jafnaði fjórum mínútum síðar.
Staðan var því 1-1 þegar komið var inn á lokakaflann og gerði Kristín Sara dramatískt sigurmark fyrir Seltirninga seint í uppbótartíma. Grótta trónir á toppi deildarinnar með 24 stig eftir 10 umferðir og sitja Haukar eftir í þriðja sæti með 17 stig en tvo leiki til góða.
KR er í öðru sæti með 19 stig eftir tap á Selfossi en þar var staðan markalaus í leikhlé.
Embla Dís Gunnarsdóttir náði forystunni fyrir Selfyssinga í upphafi síðari hálfleiks og tvöfaldaði Olga Lind Gestsdóttir forystuna á lokakaflanum, áður en Katla Guðmundsdóttir minnkaði muninn úr vítaspyrnu.
Nær komust Vesturbæingar þó ekki svo lokatölur urðu 2-1. Selfoss er um miðja deild með 13 stig eftir 8 umferðir.
Að lokum skoruðu Abigail Rose Steen og Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir mörkin fyrir FHL sem lagði Völsung að velli í fallbaráttuslag.
FHL er með 10 stig eftir 9 umferðir, tveimur stigum meira en Völsungur.
Haukar 1 - 2 Grótta
0-1 Kristín Sara Arnardóttir ('54 )
1-1 Rakel Lilja Hjaltadóttir ('58 )
1-2 Kristín Sara Arnardóttir ('94 )
Selfoss 2 - 1 KR
1-0 Embla Dís Gunnarsdóttir ('51 )
2-0 Olga Lind Gestsdóttir ('82 )
2-1 Katla Guðmundsdóttir ('89, víti)
Völsungur 0 - 2 FHL
0-1 Abigail Rose Steen ('64 )
0-2 Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir ('73 )