09.08.15 - 11:15
Arnar Geir Halldórsson
Antonio Cassano til Sampdoria (Staðfest)

Cassano er genginn til liðs við Sampdoria á nýjan leik

Mynd: Getty Images

Ítalski stuðboltinn Antonio Cassano hefur gert tveggja ára samning við ítalska úrvalsdeildarliðið Sampdoria.
Cassano hefur verið án félags síðan í janúar á þessu ári þegar hann rifti samningi sínum við gjaldþrota lið Parma þar sem hann hafði ekki fengið greidd laun í marga mánuði.
Þessi 33 ára gamli sóknarmaður þekkir vel til hjá Sampdoria. Hann lék með liðinu á árunum 2007-2011 við góðan orðstír en yfirgaf félagið eftir útistöður við þáverandi forseta félagsins.
Cassano hefur leikið með liðum á borð við Real Madrid, Roma, Inter og AC Milan á sínum ferli auk þess að eiga 39 landsleiki fyrir Ítalíu.
Sampdoria hefur leik í Serie A þann 23.ágúst næstkomandi þegar liðið fær nýliða Carpi í heimsókn en Sampdoria endaði í 7.sæti Serie A á síðustu leiktíð.

Heimild: Sampdoria