Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 09. ágúst 2018 22:11
Ísak Máni Wíum
Fúsi: Auðvitað hef ég áhyggjur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég er bara mjög svekktur með leikinn, þetta var lélegur leikur af okkar hálfu og ég er bara hundfúll."

Sagði Vigfús Arnar Jósepsson þjálfari Leiknis eftir 1-0 tap fyrir grönnum sínum í ÍR í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 1 -  0 Leiknir R.

Okkur gekk illa að byggja upp spil og fórum kannski full fljótt í örvæninguna og sóknarleikurinn var bara ekki neitt neitt. Við byrjuðum þennan leik mjög illa og vorum í lélegu jafnvægi. Við leyfðum þeim að eiga upphlaup á okkur sem við ætluðum ekki að leyfa þeim að eiga."

Leiknir hafa einungis fengið tvö stig úr síðustu fimm leikjum og síga neðar og neðar í töflunni og Fúsi hefur áhyggjur af stöðu mála.

Auðvitað hef ég áhyggjur, við erum búnir að vera í neðri hluta deildarinnar í allt sumar og falldraugurinn hefur alltaf verið að kitla okkur og það batnar ekki ástandið eftir þennan leik."

Næsti leikur Leiknis er gegn HK sem hafa verið illviðráðanlegir í allt sumar.

Það er nýtt verkefni, við þurfum bara að svekkja okkur í kvöld og mæta með skýran haus á æfingu á morgun og gera okkur klára fyrir leikinn gegn HK á þriðjudaginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner