Fotbolti.net
09.09.20 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ben Foster um Chelsea og Everton: Börnin mín hlógu

Ben Foster.

Ben Foster.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Ben Foster skrifaði undir nýjan samning við Watford í byrjun sumars.
Foster hefur varið mark liðsins undanfarin tvö tímabil og þótt standa sig vel. Samningur hans við félagið, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, rennur núna út 2022.

Foster er 37 ára gamall, en þrátt fyrir nýjan samning var hann orðaður við félög eins og Chelsea og Everton í sumar. Hann trúði því ekki þegar hann heyrði af þessum sögusögnum.

„Börnin mín hlógu meira að segja, þau sögðu við mig að ég yrði að sjá þetta og ég svaraði að það hljóti að vera gúrkutíð. Það var enginn sannleikur í þessu," sagði Foster léttur í viðtali við Football Daily

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.