Fotbolti.net
09.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

„Harry Kane er fremstur í þeirri baráttu“

„Harry Kane er fremstur í þeirri baráttu“
Canon

Mynd: EPA

Karl-Heinz Rummenigge, fyrrum leikmaður Bayern München og þýska landsliðsins, vonast til að Harry Kane hljóti Ballon d'Or í ár.
Kane fór á kostum á síðustu leiktíð og enginn hefur skorað fleiri mörk en hann á þessu almanaksári. Hann hefur líka byrjað nýtt tímabil af krafti og stendur því vel að vígi í baráttunni um Ballon d'Or.

Michael Owen er síðasti Englendingurinn til að vinna verðlaunin en hann hlaut þau árið 2001. Síðasti leikmaður Bayern til að hreppa þau var Rummenigge árið 1981 og hann vill sjá Kane feta í fótspor sín.

„Ég var síðasti leikmaður Bayern til að vinna verðlaunin og væri því til í að sjá annan leikmann liðsins vinna þau núna. Harry Kane er fremstur í þeirri baráttu. Mörkin hans og titlarnir tala sínu máli,“ sagði Rummenigge.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.