Máni Már Steinbjörnsson er búinn að skrifa undir samning við Hauka sem gildir út næstu tvö tímabil.
Máni Már er 19 ára gamall og er að ganga upp úr 2. flokki. Hann tók þátt í tveimur leikjum í Inkasso-deildinni í sumar og á einn leik að baki í deildabikarnum.
Máni er fjölhæfur varnarmaður sem getur spilað allar stöður í öftustu línu.
„Knattspyrnudeild Hauka fagnar samningnum við Mána og bindur miklar vonir við hann á komandi árum," segir á vefsíðu Hauka.
Haukar féllu úr Inkasso-deildinni í sumar og munu því spila í 2. deildinni á næsta ári.
Athugasemdir