09.11.26 - 13:44
Enski boltinn
„Hefur verið að hirða þarna laun í átta ár"

Diogo Dalot.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Dalot í leik með Man Utd.

Mynd: EPA

Diogo Dalot.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Diogo Dalot nýtur ekki mikilla vinsælda á meðal stuðningsmanna Manchester United í dag. Hann hefur verið að spila mjög illa að undanförnu og átti sannkallaðan hauskúpuleik í gær þegar United gerði 4-4 jafntefli gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Dalot var skipt af velli í seinni hálfleik og þá bauluðu stuðningsmenn United.

„Hann fer versnandi með hverjum leiknum sem hann spilar, gjörsamlega hræðilegur í kvöld. Það er merkilegt við Diogo Dalot að hann er búinn að vera þarna í átta ár," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Enski boltinn hlaðvarpinu.
„Það er eiginlega alveg ótrúlegt," sagði Magnús Geir Eyjólfsson.
Dalot hefur ekki sýnt á þessum átta árum að hann sé nægilega góður fyrir Man Utd.
„Þetta er eitt af einkennismerkjum þess að vandamálið er stærra en þjálfarinn. Það eru leikmenn eins og Diogo Dalot sem hefur verið þerna í átta ár. Hvernig í ósköpunum fær hann endurnýjun á samningi? Hvernig er ekki búið að selja leikmanninn fyrir löngu síðan?" spurði Haraldur Örn Haraldsson.
„Hann hefur verið að hirða laun þarna í átta ár," sagði Guðmundur Aðalsteinn.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.