Fotbolti.net
09.12.20 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Arnór Smárason í Val (Staðfest)

Arnór Smárason á landsliðsæfingu.

Arnór Smárason á landsliðsæfingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Skagamaðurinn Arnór Smárason hefur verið kynntur sem nýr leikmaður Vals.

Anór er 32 ára sóknarleikmaður sem leikið erlendis allan sinn feril hingað til, spilað til að mynda í Hollandi, Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi og Noregi og nú á Íslandi.

Arnór sem er margreyndur landsliðsmaður á að baki 26 leiki með A-landsliði Íslands og hefur skorað í þeim leikjum þrjú mörk.

„Það er frábært fyrir Íslenskan fótbolta að fá þennan öfluga leikmann heim og um leið sýnir það þann metnað og vilja til að gera deildina betri," segir í tilkynningu Vals.

Arnór hefur leikið síðustu tvö ár fyrir Lilleström í Noregi og hjálpaði liðinu á dögunum að komast upp í efstu deild þar í landi.

Valur varð Íslandsmeistari í ár og er Arnór annar leikmaðurinn sem Hlíðarendafélagið fær til sín fyrir næsta tímabil. Áður hafði liðið fengið Kristófer Jónsson, 17 ára leikmann sem kom frá Haukum.

Komnir:
Arnór Smárason frá Lilleström
Kristófer Jónsson frá Haukum

Farnir:
Eiður Aron Sigurbjörnsson til ÍBV
Aron Bjarnason til Ujpest (Var á láni)
Einar Karl Ingvarsson í Stjörnuna
Kasper Högh til Randers (Var á láni)

Samningslausir
Lasse Petry
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.