09.12.20 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bára hættir með Augnablik (Staðfest)

Bára hér til vinstri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bára hér til vinstri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mun ekki stýra Augnabliki í Lengjudeild kvenna næsta sumar.
Bára var á dögunum ráðin þjálfari liðsins, en hefur óskað eftir því að hætta í því starfi. Hún er á leið til Svíþjóðar þar sem hún mun starfa við fótboltaþjálfun.
Tilkynning frá Augnabliki
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir sem nýlega gerði tveggja ára samning um þjálfun Augnabliks hefur óskað eftir því að hætta þjálfun Augnabliks í lok árs 2020 til að taka við þjálfun hjá sænsku liði á nýju ári.
Breiðablik varð við ósk hennar enda frábært að efnilegir íslenskir kvennaþjálfarar fái tækifæri til að starfa á erlendri grundu. Breiðablik þakkar henni fyrir góð störf þann stutta tíma sem hún starfaði og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.
Nýr þjálfari Augnabliks verður kynntur síðar.