Fotbolti.net
09.12.20 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Luke Rae til Vestra (Staðfest)

Luke Rae og félagar fagna marki í haust.

Luke Rae og félagar fagna marki í haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luke Morgan Conrad Rae er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Vestra eftir að hafa skorað 18 mörk í 23 leikjum með Tindastóli í sumar.
Luke er tvítugur sóknarmaður frá Englandi sem lék fyrir utandeildarlið Blackfield & Langley áður en hann flutti til Íslands.

Hann gerði frábæra hluti í 3. deildinni og tekur stórt stökk upp í Lengjudeildina.

Vestri er með flottan leikmannahóp og endaði í sjöunda sæti í haust með 29 stig úr 20 leikjum.

„Við óskum Luke góðs gengis í Vestra treyjunni og hlökkum til að sjá hann á vellinum. Áfram Vestri!" segir í tilkynningu Vestra.

Heimild: Vestri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.