10.01.15 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Bebe lánaður til Cordoba (Staðfest)

Bebe

Mynd: Getty Images

Bebe

Mynd: Getty Images
Portúgalski framherjinn, Bebe, er genginn til liðs við Cordoba í spænsku úrvalsdeildinni en er á láni frá Benfica út tímabilið.
Bebe, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við Benfica frá Manchester United í sumar en hann lék einungis sex leiki með portúgalska liðinu.
Það var undarleg saga er hann var keyptur til Man Utd fyrir um það bil 7 milljónir punda árið 2010 en honum tókst aldrei að komast á skrið hjá liðinu og var lánaður nokkrum sinnum.
Hann er nú kominn til Cordoba í spænsku deildinni en hann er nú þegar kominn með leikheimilid og getur spilað með liðinu er það mætir Rayo Vallecano á mánudag.