10.01.15 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sarah Millar í Þór/KA (Staðfest) - Grimsley áfram

Kayla Grimsley spilar með Þór/KA í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kayla Grimsley spilar með Þór/KA í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur styrkt sig fyrir komandi átök og fengið Söruh Millar frá Bandaríkjunum. Kayla Grimsley mun þá halda áfram að leika með liðinu.
Millar, sem er 23 ára gömul, spilar sem framherji eða kantmaður en hún þykir afar fljót og fara góðar sögur af henni frá háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Félagið hefur þá samið við Kaylu Grimsley en hún hefur leikið með liðinu frá árinu 2012 og verið lykilmaður í liðinu.
Hún hefur spilað 60 leiki með Þór/KA og skorað í þeim 11 mörk en ljóst er að hún kemur til með að leika áfram lykilhlutverk í liðinu.