Ísland mætir Svíþjóð í vináttuleik í Katar á morgun klukkan 16:45. Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða og því fá margir nýir leikmenn tækifæri til að spreyta sig.
Hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson er lang reyndastur í hópnum og Fótbolti.net spáir því að hann byrji á morgun.
Í líklegu byrjunarliði má einnig finna liðsfélaga hans Eið Aron Sigurbjörnsson en hann gæti spilað sinn fyrsta landsleik á morgun.
Birkir og Eiður eru einu leikmennirnir úr Pepsi-deildinni í líklegu byrjunarliði en aðrir leikmenn spila erlendis.
Hjörtur Hermannsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Guðmundur Þórarinsson, Andri Rúnar Bjarnason og Samúel Kári Friðjónsson voru í síðasta landsliðshópi gegn Belgíu og Katar og þeir byrja allir á morgun.
Líklegt byrjunarlið:
Frederik Schram - Roskilde
Markvörður Roskilde sem er í 10. sæti dönsku B-deildarinnar.
Birkir Már Sævarsson - Valur
Íslandsmeistari með Val. Eini í hópnum núna sem er lykilmaður í landsliðinu.
Hjörtur Hermannsson - Bröndby
Þurfti að verma varamannabekkinn í síðustu leikjum fyrir vetrarfrí í Danmörku. Bröndby er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.
Eiður Aron Sigurbjörnsson - Valur
Lykilmaður í vörn Ílandsmeistara Vals.
Böðvar Böðvarsson - Jagiellonia
Mikið þurft að verma varamannabekkinn í Póllandi en leikið vel þegar hann hefur fengið tækifærið.
Óttar Magnús Karlsson - Mjallby
Nýkominn til Mjallby sem komst upp úr sænsku C-deildinni á síðasta tímabili.
Eggert Gunnþór Jónsson - SönderjyskE
Byrjunarliðsmaður hjá SönderjyskE sem er um miðja dönsku úrvalsdeildina.
Samúel Kári Friðjónsson - Valerenga
Átti ekki fast sæti hjá Valerenga sem hafnaði í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Guðmundur Þórarinsson - Norrköping
Spilar stórt hlutverk með Norrköping og er eftirsóttur.
Arnór Smárason - Án félags
Átti mjög góða frammistöðu með Lilleström á liðnu ári en er nú félagslaus.
Andri Rúnar Bjarnason - Helsingborg
Markakóngur þegar Helsingborg vann sænsku B-deildina á liðnu ári.
Aðrir leikmenn:
Ingvar Jónsson - Viborg
Hefur staðið vaktina vel í marki Viborg sem er á toppnum í dönsku B-deildinni.
Anton Ari Einarsson - Valur
Íslandsmeistari með Val í fyrra. Á einn landsleik að baki.
Adam Örn Arnarson - Félagslaus
Yfirgaf Álasund á dögunum eftir að liðið komst ekki upp úr norsku B-deildinni. Framhaldið óljóst.
Davíð Kristján Ólafsson - Breiðablik
Er nýliði í hópnum. Hefur staðið sig vel með Breiðabliki.
Axel Óskar Andrésson - Viking
Var á láni hjá Viking frá Reading síðari hluta síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að vinna norsku B-deildina. Samdi við Viking til frambúðar á dögunum.
Hilmar Árni Halldórsson - Stjarnan
Bikarmeistari með Stjörnunni á síðasta tímabili. Á tvo landsleiki að baki.
Jón Dagur Þorsteinsson - Vendsyssel
Fastamaður í liði Vendsyssel sem er í 12. sæti í dönsku B-deildinni. Er á láni frá Fulham.
Alex Þór Hauksson - Stjarnan
Er einn af nýliðunum í hópnum.
Willum Þór Willumsson - Breiðablik
Hefur verið orðaður við Spezia á Ítalíu að undanförnu. Er nýliði í hópnum.
Kolbeinn Birgir Finnsson - Brentford
Spilar með U23 ára liði Brentford. Var kallaður inn í hópinn eftir að Kári Árnason meiddist.
Aron Elís Þrándarson - Álasund
Er að sigla inn í sitt fimmta tímabil með Álasund.
Kristján Flóki Finnbogason - Start
Kominn aftur til Start eftir lándsvöl hjá IF Brommapojkarna í Svíþjóð.
Athugasemdir