Utandeildarlið Marine tapaði fyrir Tottenham í enska bikarnum í dag og vakti heimavöllur liðsins athygli þar sem hann er innan um íbúðarhverfi í Crosby, 50 þúsund manna bæ nálægt Liverpool í Merseyside héraði.
Það voru nokkrir áhorfendur leyfðir á stúku fyrir aftan annað markið en fleiri áhorfendur mátti finna umhverfis völlinn, bakvið girðingu.
Einn þeirra var mikið í mynd í útsendingu BBC frá leiknum, þar sem hann hafði tekið stórt pappaspjald af Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, með sér.
Hann er líklega stuðningsmaður Liverpool eins og margir aðrir íbúar í Crosby.
Even Jurgen Klopp came to watch Marine v Spurs 🤣🤣 pic.twitter.com/y9WT4O9IPS
— talkSPORT (@talkSPORT) January 10, 2021
Athugasemdir