10.03.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cristian Rodriguez yfirgefur Parma fyrir Gremio (Staðfest)

Cristian Rodriguez á 83 landsleiki að baki fyrir Úrúgvæ.

Mynd: Getty Images

Cristian Rodriguez, leikmaður Atletico Madrid, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Parma.
Rodriguez er úrúgvæskur miðjumaður sem var lánaður til Parma í janúar án þess að vita af fjárhagsvandamálum félagsins, sem hefur ekki greitt laun til leikmanna í marga mánuði.

Rodriguez ákvað því að segja upp lánssamningnum við Parma og mun leika fyrir brasíliska félagið Gremio út tímabilið.
Rodriguez lék sex leiki fyrir Parma og var rekinn af velli í þeim síðasta, sem var markalaust jafntefli gegn Atalanta.