Fotbolti.net
10.03.15 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Friðjón, Matthías og Trausti Marel í KF (Staðfest)

Friðjón Magnússon hefur gengið til liðs við KF á láni.

Friðjón Magnússon hefur gengið til liðs við KF á láni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur styrkt sig fyrir komandi tímabil í 2. deild karla.

Miðvörðurinn Friðjón Magnússon er kominn til félagsins á láni frá Leikni en hann hefur spilað með KF í Kjarnafæðismótinu og Lengjubikarnum undanfarnar vikur.

Trausti Marel Guðmundsson er einnig kominn frá Breiðabliki en hann er ennþá á elsta ári í 2. flokki.
Markvörðurinn Matthías Ragnarsson er líka kominn til KF frá Hamri í Hveragerði.

Þá hefur Jakob Hafsteinsson gengið alfarið til liðs við KF frá KA. Jakob var í láni hjá KF frá KA á síðasta tímabili en þá spilaði hann alla 22 leiki liðsins í 2. deildinni.

Jón Aðalsteinn Kristjánsson þjálfar KF en hann tók við af Dragoslav Stojanovic síðastliðið haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.