Fotbolti.net
10.03.15 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Norðmaðurinn Ulvestad til Burnley (Staðfest)

Norðmaðurinn Ulvestad til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Burnley hefur fengið Norðmanninn Fredrik Ulvestad á frjálsri sölu. Þessi 22 ára leikmaður lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Álasund, uppeldisfélags síns, aðeins sautján ára.

Hann lék yfir 100 leiki fyrir félagið áður en hann yfirgaf herbúðir þess í lok síðasta tímabils þegar samningur hans rann út.
Hann lék 14 leiki fyrir U21-landslið Noregs ásamt því að eiga einn A-landsleik.

Burnley er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni en samningur Ulvestad við Burnley er til þriggja ára.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.