10.03.15 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Skallagrímur fær fyrrum leikmann Blackburn (Staðfest)

Úr leik hjá Skallagrími síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Skallagrímur hefur fengið enska leikmanninn Declan Redmond í sínar raðir fyrir átökin í 4. deildinni í sumar.
Declan er fæddur í Liverpool árið 1994 en hann var knattspyrnuakademíu Blackburn frá 2005-2010.
Þaðan fór hann í 19 ára lið Fleetwood Town og síðar til SC Farense í Portúgal. Þar skoraði hann 18 mörk í 24 leikjum og átti að auki 10 stoðsendingar. Sporting Lisbon og Academica fylgdust með honum en ákváðu að bjóða honum ekki samning.
Declan hefur síðan leikið með Onze Esperanca í 4. deildinni í Portúgal og skorað að meðaltali í öðrum hverjum leik.
Declan mun spila sinn fyrsta leik með Skallagrími á laugardag þegar liðið mætir ÍH í Lengjubikarnum.

Heimild: Heimasíða Skallagríms