Fotbolti.net
10.03.15 - 12:45
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Upptaka - Björn Már um ástandið hjá Parma

Auglýsing
Upptaka - Björn Már um ástandið hjá Parma
Canon

Mynd: Getty Images

„Þeir hafa oft lent í fjárhagserfiðleikum og heilt yfir er þetta mjög illa rekið félag í alla staði. Það hefur verið margt gruggugt þarna í gangi í gegnum tíðina,\" segir Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, um stöðu Parma.

Parma er langneðst í A-deildinni og er í tómu tjóni fjárhagslega.
„Félagið er á leið í gjaldþrot en það verður tekið fyrir í lok mars. Ástandið er svo slæmt núna að félagið á í erfiðleikum með dagleg útgjöld. Þeir hafa ekki efni á að hafa flóðljósin í gangi og geta ekki borgað vörðum til að vinna á leikjunum þeirra.\"

„Önnur félög í deildinni hafa samþykkt að borga þeim fimm milljónir evra sem á að duga til að dekka útgjöldin út tímabilið hjá þeim.\"

Björn Már var í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag en umræðuna má heyra í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.