10.03.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Zeman tekur við Cagliari aftur (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Zdenek Zeman er búinn að taka við Cagliari á nýjan leik eftir að Gianfranco Zola var rekinn.
Zeman var rekinn rétt fyrir jól svo Zola gæti tekið við, en félaginu hefur ekki farnast betur undir stjórn Zola svo ákveðið var að endurráða Zeman.
Zeman var rekinn rétt fyrir jól svo Zola gæti tekið við, en félaginu hefur ekki farnast betur undir stjórn Zola svo ákveðið var að endurráða Zeman.
Cagliari er í fallbaráttu við Hörð Björgvin Magnússon og félaga í Cesena, þar sem bæði lið eru í fallsæti með 20 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti í deild og átta stigum fyrir ofan botnlið Parma.
Aðstoðarteymi Zeman fylgir honum inn í félagið, en það skipa Vincenzo Cangelosi, Giacomo Modica og Roberto Ferola.
Aðstoðarteymi Zeman fylgir honum inn í félagið, en það skipa Vincenzo Cangelosi, Giacomo Modica og Roberto Ferola.
