Fotbolti.net
10.03.17 - 15:34
Magnús Már Einarsson

Darko Bulatovic í KA (Staðfest)

Srdjan Tufegdzic þjálfari KA og Darko.

Srdjan Tufegdzic þjálfari KA og Darko.

Canon

Mynd: Heimasíða KA

Vinstri bakvörðurinn Darko Bulatovic hefur gert eins árs samning við KA og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni komandi sumar.
Darko er frá Svartfjallandi en hann getur einnig leyst af stöðu kantmanns og miðvörðs. Hann hefur æft með liðinu undanfarnar vikur og nú eru samningar í höfn.

Darko er fæddur árið 1989 og hefur mestan sinn feril leikið í Serbíu. Darko lék síðast með liði Cukaricki í Serbíu og var fyrir það á mála hjá Radnicki Nis þar í landi.

Darko á að baki 63 leiki í efstu deild í Serbíu og hefur á spilað fyrir U21 landslið Svartfjallalands.

„KA-menn fagna komu Darko sem mun styrkja liðið í baráttunni sem framundan er,\" segir á heimasíðu KA.

Sjá einnig:
Tufa: Skipting eins og í körfuboltanum

Komnir/farnir

Komnir:
Darko Bulatovic frá Cukaricki
Kristófer Páll Viðarsson frá Víkingi R. (Á láni)
Steinþór Freyr Þorsteinsson frá Sandnes Ulf

Farnir:
Juraj Grizlej
Orri Gústafsson fluttur erlendis
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.