Fotbolti.net
10.03.17 - 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Norwich búið að reka þjálfara sinn (Staðfest)

Alex Neil er búinn að missa starfið.

Alex Neil er búinn að missa starfið.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich City, sem leikur í ensku Championship-deildinni, hefur ákveðið að reka hinn skoska Alex Neil úr starfi knattspyrnustjóra, en þetta var tilkynnt fyrr í dag.

Hinn 35 ára gamli Neil hjálpaði Norwich að komast upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa tekið við liðinu í janúar 2015, en þeir féllu svo á síðasta tímabili.
Norwich leikur nú í Championship-deildinni, næst-efstu deild Englands, en liðið hefur ekki unnið í síðustu fimm leikum sínum og er nú níu stigum frá umspilssæti.

Alan Irvine, sem hefur verið í þjálfaraliði Norwich, mun stýra liðinu þegar það mætir fallbaráttuliði Blackburn á morgun.

Hér að neðan má sjá tíst frá Norwich þar sem yfirlýsing fylgir með.

Club statement: Alex Neil leaves Norwich City with immediate effect. #ncfc

Full story: https://t.co/YoyHQD5D6u pic.twitter.com/TyirSmmjO6

— Norwich City FC (@NorwichCityFC) March 10, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.