Fotbolti.net
10.03.17 - 14:02
Magnús Már Einarsson

Sænskur varnarmaður í Víking Ó. (Staðfest)

Ólsarar fá liðsstyrk fyrir sumarið.

Ólsarar fá liðsstyrk fyrir sumarið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Víkingur Ólafsvík hefur fengið varnarmanninn Mirza Mujcic í sínar raðir fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar.
Mirza er 22 ára gamall Svíi en hann á einnig ættir að rekja til Bosníu-Hersegóvínu. Mirza hóf að spila með GAIS í sænsku úrvalsdeildinni þegar hann var 18 ára gamall, síðari hluta tímabils 2012.

GAIS féll árið 2012 og í kjölfarið spilaði Mirza tvö tímabil með liðinu í næstefstu deild. Árið 2015 spilaði Mirza með Utsikten í næstefstu deild í Svíþjóð en í fyrra var hann á mála hjá Notodden í norsku C-deildinni.

Ólafsvíkingar hafa misst miðverðina Aleix Egea og Denis Kramar frá síðasta tímabili og Mirza á að hjálpa til við að fylla skarð þeirra.

Komnir:
Guðmundur Steinn Hafsteinsson frá ÍBV
Gunnlaugur Hlynur Birgisson frá Breiðabliki
Mirza Mujcic frá Notodden

Farnir:
Admir Kubat
Aleix Egea tiil Almoradi
Björn Pálsson
Denis Kramar til SJK Seinäjoki
Hrvoje Tokic í Breiðablik
Martin Svensson
Pontus Nordenberg til Nyköpings BIS
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.