Fotbolti.net
10.03.17 - 06:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Víglundur tekur aftur við Einherja (Staðfest)

Víglundur og Todor Hristov stýra Einherja í sumar

Víglundur og Todor Hristov stýra Einherja í sumar

Canon

Mynd: Einherji

Einherji frá Vopnafirði hefur ráðið Víglund Pál Einarsson sem þjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil.

Víglundur er öllum hnútum kunnur hjá félaginu en hann á 81 meistaraflokksleik að baki með liðinu. Auk þess þjálfaði Víglundur Einherja á árunum 2013-2015 og gerði liðið að 4. deildarmeisturum árið 2013.

Víglundur færði sig um set á Austurlandinu í fyrra og þjálfaði Fjarðabyggð í Inkasso-deildinni en Fjarðabyggð féll úr deildinni í fyrra.

Aðstoðarmaður Víglundar verður búlgarski kantmaðurinn Todor Hristov. Todor hefur leikið 35 leiki með Einherja en hann gekk til liðs við félagið árið 2015.

Einherjamenn fagna ráðningu þeirra félaga og sjá fram á skemmtilegt sumar en Einherji mun leika í 3. deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.