Fotbolti.net
10.03.20 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Efasemdir um Zidane hjá Real Madrid

Zinedine Zidane.

Zinedine Zidane.

Canon

Mynd: Getty Images

Marca segir að efasemdir séu um Zinedine Zidane hjá æðstu mönnum Real Madrid og farið sé að ræða möguleg þjálfaraskipti. Mauricio Pochettino, fyrrum stjóri Tottenham, er orðaður við Madrídarfélagið.

Real Madrid hefur tapað fjórum af sjö síðustu leikjum í öllum keppnum. Liðið er dottið úr leik í bikarkeppninni og er í slæmri stöðu í Meistaradeildinni eftir tap gegn Manchester City 2-1.

Þá datt liðiðið niður í 2. sæti í La Liga um helgina þrátt fyrir að hafa unnið sigur í El Clasico nýlega.
Pochettino hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Tottenham í nóvember. Massimiliano Allegri, fyrrum stjóri Juventus, hefur einnig verið nefndur í tengslum við Real Madrid.

Talið er að ef Zidane mun ekki ná að rétta úr kútnum gætu dagar hans hjá Madrídarliðinu verið taldir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.