banner
   þri 10. mars 2020 17:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðni segir að U21 landslið fari í gang á þessu ári
U19 landslið kvenna vann Þýskaland í gær. Liðið vann einnig Sviss og Ítalíu á æfingamóti á Spáni.
U19 landslið kvenna vann Þýskaland í gær. Liðið vann einnig Sviss og Ítalíu á æfingamóti á Spáni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, skrifar á Twitter að U21 landslið kvenna sé verkefni sem muni fara í gang í ár.

Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrrum landsliðskona og landsliðsþjálfari, lét í sér heyra á Twitter í gær eftir að U19 landslið kvenna vann Þýskaland 2-0 í vináttuleik liðanna á La Manga á Spáni.

„Stórkostlegur árangur. Innilega til hamingju EN ekki tími til kominn að setja á U20/U21 kvenna, svo að þessu verði viðhaldið, ha KSÍ? Við erum búin að missa Holland langt fram úr okkur í A og núna Skotland... #hvarendarþetta?" sagði Vanda á Twitter.

Reglulega hefur verið rætt um að stofna U21 eða U23 ára lið kvenna undanfarin ár en ekkert hefur gerst í þeim málum ennþá. Málið var síðast til umfjöllunar á stjórnarfundi hjá KSÍ í október. Í fjárhagsáætlun KSÍ árið 2020 er gert ráð fyrir verkefni hjá U23 ára liði kvenna, en Guðni segir á Twitter að það verði verkefni fyrir U21 á þessu ári.

„U-19 kvenna að gera það heldur betur gott. Unnu nú þjóðverja á La Manga. Ég segi og skrifa, framtíðin er björt. Kvennalandsliðið vann líka Úkraínu í dag. U-21 kvenna er svo að fara í gang í ár," skrifar Guðni.

A landslið kvenna lék í dag sinn síðasta leik á æfingamóti á Pinatar á Spáni. Liðið vann 1-0 sigur á Úkraínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner