Fotbolti.net
12.09.26 - 19:37
Stefán Marteinn Ólafsson

Álfhildur Rósa: Fannst ekki í eina sekúndu eins og við værum að hugsa að við værum að fara tapa

Auglýsing
Álfhildur Rósa og  Jelena Tinna með bikarinn

Álfhildur Rósa og Jelena Tinna með bikarinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Þróttur er Mjólkurbikarmeistari kvenna 2026 eftir frábæran sigur á Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli í dag. 

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.

„Gríðarlega vel, ég á bara erfitt með að lýsa því hvernig tilfinningin er eftir þennan leik" sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir fyrirliði Þróttar aðspurð um hvernig það hljómaði að vera Mjólkurbikarmeistari 2026. 

„Vissi að þetta yrði hörku leikur. Vissi að þetta yrði svipaður leikur og þetta var og þetta var svolítið bara að ráðast á hvernig við myndum klára þetta inni í teigunum" 

Þróttur lenti undir í dag en sýndi frábæran karakter að koma til bara og snúa leiknum sér í hag.

„Karakterinn í þessu liði er frábær. Það var einbeiting og fókus allan tímann og mér fannst ekki í eina sekúndu eins og við værum að hugsa að við værum að fara tapa þessum leik þegar markið kom á okkur þannig ég er ótrúlega stolt af liðinu með þetta" 

Álfhildur Rósa var í liði Þróttar sem tapaði bikarúrslitum 2021 fyrir Val og hefur því upplifað báðar hliðar af bikarúrslitunum. 

„Það er miklu skemmtilegra, það er allt öðruvísi tilfinning eftir þennan leik heldur en síðast. Þessvegna er þetta svo extra sætt einhvernveginn í dag" sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir. 

Nánar er rætt við Álfhildi Rósu Kjartansdóttur í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.