Fotbolti.net
12.09.26 - 19:19
Snæbjört Pálsdóttir

Natasha ósammála vítadómnum: „Mér fannst það fullmikið“

Auglýsing
Natasha Moraa Anasi var stolt af Grindavík/Njarðvík þrátt fyrir tapið í bikarúrslitunum.

Natasha Moraa Anasi var stolt af Grindavík/Njarðvík þrátt fyrir tapið í bikarúrslitunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Natasha Moraa Anasi, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, var tilfinningarík eftir 2-1 tapið gegn Þrótti í úrslitum Mjólkurbikarsins. Hún var stolt af frammistöðu liðsins en ósátt við vítaspyrnuna sem Þróttur fékk.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.

„Kannski eins og það sést á mér, það er bara mikið tilfinningar. Mér fannst við vorum frábær í dag, sérstaklega í stóran kafla þarna í seinni hálfleik. Svo það er smá erfitt að kyngja þessu en svona er fótbolti,“ sagði Natasha eftir leik.


Hún hefur spilað á Laugardalsvelli fyrir hönd Íslands en mætti nú þangað með Grindavík/Njarðvík í fyrsta bikarúrslitaleik sameiginlegs liðs félaganna.

„Jú, bara mikið stolt. Þessi hópur er bara sérstök og geggjað og mig langaði mikið að vinna þetta með þeim í dag. En samt, þú getur ekki tekið neitt frá þessum hópi.“


Natasha segir þetta vera einn besta leikmannahóp sem hún hefur spilað með.

„Það er bara ein besta hópur sem ég er búin að spila með.“


Þróttur jafnaði metin úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Natasha vildi skoða atvikið aftur en var ekki sátt við dóminn.

„Ég þarf kannski að skoða það aftur. Mér fannst það bara alveg fullmikið miðað við að við kannski gátum alveg fengið víti líka í seinni hálfleik. Svo mér fannst það bara fullmikið að gefa það.“

„Ég er ekki sammála en þetta er bara þannig.“


Grindavík/Njarðvík vann sér sæti í Bestu deildinni síðasta haust, tryggði sér sæti í efri hlutanum á sínu fyrsta tímabili meðal þeirra bestu og komst alla leið í bikarúrslit. Natasha telur framtíðina bjarta.

„Eins og þú ert búinn að sjá með þennan árangur, það er bara fáránlegt. Fyrir ári síðan voru þær að tryggja sér upp í Bestu deildina og svo núna eru þær komnar í úrslit og tryggja sig á næsta ári.“

„Þessi hópur getur gert það sem þær vilja gera. Það er bara fullt af geggjuðum leikmönnum, svo margar sem eru búnar að stíga upp líka á þessu ári. Ég get ekki séð annað en að þær vinna titil á næsta ári.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.