Fotbolti.net
12.09.26 - 19:22
Stefán Marteinn Ólafsson

Gylfi Tryggva: Besta vika lífs míns og úrslitin í dag breyta því ekki

Auglýsing
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Þróttur er Mjólkurbikarmeistari kvenna 2026 eftir frábæran sigur á Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli í dag. 

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R.

„Þetta hefði alveg geta verið sárara en þetta var samt alveg sárt, það hefði verið skemmtilegra að vinna þennan leik" sagði Gylfi Tryggvason eftir tapið í dag. 

„Mér fannst við vera eiginlega bara í skallatennis hérna fyrstu tíu mínúturnar inni í okkar vítateig. Þetta var ótrúlega skrítin byrjun en þær lágu alveg á okkur án þess þó kannski að skapa sér eitthvað fannst mér" 

„Fljótlega eftir það þegar við erum búnar að hrista af okkur smá skrekk þá fannst mér við bara ná góðri stjórn á leiknum og ég fór mjög sáttur inn í hálfleikinn" 

„Í seinni hálfleik þá fannst mér við vera bara frábærar og skorum verðskuldað mark. Við hefðum í raun getað skorað meira fannst mér. Við fengum frábærar stöður" 

„Þær jafna nokkurnveginn upp úr þurru eða þannig upplifði ég það og skora svo fljótlega eftir það og eftir það þá gera þær ótrúlega vel í að láta leikinn snúast um innköst og aukaspyrnur, í raun drepa bara leikinn og gera það vel" 

Undirbúningur Gylfa Tryggvasonar var aðeins frábrugðin því sem hefðbundið mætti teljast en hann eignaðist sitt fyrsta barn í vikunni. 

„Hann var ótrúlega áhugaverður. Fyrir mig er þetta náttúrlega búið að vera besta vika lífs míns og úrslitin í dag breyta því ekki" 

„Ég er búin að eiga frábæra viku persónulega og við lögðum þennan leik vel upp snemma í vikunni og með frábært teymi náttúrlega. Ég get ekki hrósað þessu teymi sem er með mér nógu mikið. Þeir tóku og stigu inn þegar á því þurfti að halda" sagði Gylfi Tryggvason. 

Nánar er rætt við Gylfa Tryggvason í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.