Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. mars 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Pablo Mari vill vera áfram hjá Arsenal
Mynd: Arsenal
Spænski varnarmaðurinn Pablo Mari vill gera vistaskipti sín til Arsenal varanleg í sumar en hann er á láni frá brasilíska félaginu Flamengo.

Mari er 26 ára gamall og kom á láni í janúarglugganum en spilar með Arsenal út leiktíðina.

Hann var frábær er Flamengo vann Copa Libertadores og brasilísku deildina.

Mari hefur spilað tvo leiki með Arsenal en hann spilaði í bikarsigri á Portsmouth í síðustu viku og þá byrjaði hann sinn fyrsta deildarleik í 1-0 sigrinum á West Ham um helgina.

„Ég vil spila í mörg ár hérna hjá Arsenal. Ég er mjög svo ánægður. Auðvitað vil ég gera skipti mín varanleg," sagði Mari.
Athugasemdir
banner
banner
banner