10.05.19 - 08:55
Elvar Geir Magnússon
Arsenal getur orðið fimmta enska liðið í Meistaradeildinni

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Um það er talað og eftir því tekið að í bæði Meistaradeildinni og í Evrópudeildinni verða <a href="https://stjornbord.fotbolti.net/news/10-05-2019/fyrsta-sinn-i-sogunni-fjogur-lid-fra-sama-landi-i-urslitum" target="_blank">enskir úrslitaleikir</a>.
England fær fjögur föst sæti í Meistaradeildinni í gegnum ensku úrvalsdeildina. Manchester City, Liverpool og Chelsea eru búin að tryggja sér þrjú þeirra.
Tottenham tekur að öllum líkindum fjórða Meistaradeildarsætið í gegnum deildina en liðið er þremur stigum á undan Arsenal og með markatölu sem er mun betri, munar þar átta mörkum.

En ef Arsenal nær að vinna Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þann 29. maí verður liðið fimmta liðið frá Englandi til að komast í Meistaradeildina. Ef Chelsea vinnur þá kemur liðið í veg fyrir þátttöku Arsenal í keppninni.
England fær tvö sæti í Evrópudeildinni gegnum ensku úrvalsdeildina og þeim sætum er ekki hægt að fjölga. Sigurvegarar FA-bikarsins komast einnig í keppnina en þar er Watford á leið í úrslitaleik gegn Manchester City.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |