Fotbolti.net
10.05.26 - 19:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"

Auglýsing
Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Sáttur með þrjú stig en spilamennskan var ekki góð. Sáttur en óánægður með margt hjá okkur," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, eftir sigur liðsins á ÍBV í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 ÍBV
„Við vorum eftir á í pressunni og lélegir á boltanum, smá eins og það væri stress. Ég nenni svo sem ekki að pæla í því lengur, er búinn að pirra mig á því í nokkrar mínútur. Þrjú stig komin á töfluna allavega. Ég ætla ekki að vera ógeðslega fúll í þessu viðtali en tveir sigrar í röð sem er mjög gott. Erum komnir í topp sex, við ætlum að halda okkur þar."

Hann skoraði fyrra mark KA. Boltinn barst til hans eftir að Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður ÍBV, hreinsaði boltann frá.

„Ég sá að Oliver var í baráttu við markmanninn og sá að hann lá eftir. Boltinn datt beint fyrir framan mig og ég vissi að markið var autt. Ég lét bara vaða og það heppnaðist."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV15-716
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.