Fotbolti.net
10.05.26 - 17:03
Ívan Guðjón Baldursson

Guðný: Held það hafi enginn gert ráð fyrir þessu

Auglýsing
Guðný: Held það hafi enginn gert ráð fyrir þessu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Guðný Geirsdóttir markvörður ÍBV hélt hreinu í fyrsta sinn á deildartímabilinu þegar Vestmannaeyingar fengu Þór/KA í heimsókn í fjórðu umferð Bestu deildarinnar.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 0 Þór/KA
Guðný var kát að leikslokum en nýliðar ÍBV hafafarið gríðarlega vel af stað og eru með fullt hús stiga.

Guðný átti frábæran leik og lék stóran þátt í 2-0 sigri í spennandi slag. Þetta er annar leikurinn sem Guðný byrjar á milli stanganna enda er í hún í harðri samkeppni við Arden Joy La-Rose um byrjunarliðssætið.

„Ógeðslega gott að klára þetta og ná fyrsta hreina laki sumarsins. Þetta er hörkusamkeppni, Arden er flottur markmaður og við erum í samkeppni fyrir hvern leik. Við höfum ógeðslega gott af þessu og ég held að þetta geri okkur bara betri. Þetta heldur okkur á tánum," sagði Guðný í viðtali.

„Auðvitað förum við inn í hvern leik til að vinna hann en ég held það hafi enginn gert ráð fyrir því að við yrðum á toppnum eftir fyrstu fjórar umferðirnar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.