Ítalía: Vonin lifir hjá Cremonese - Albert og Fiorentina áfram í efstu deild

Jamie Vardy skoraði sjötta deildarmark sitt

Mynd: EPA

Albert og Fiorentina verða áfram í deild þeirra bestu

Mynd: EPA

Jamie Vardy skoraði sjötta deildarmark sitt

Mynd: EPA
Fiorentina, með Albert Guðmundsson innanborðs, verður áfram í Seríu A á næstu leiktíð eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Genoa í Íslendingaslag í dag.
Fiorentina hefur átt afleitt tímabil í deildinni og verið í harðri fallbaráttu eftir flott síðasta tímabil þar sem liðið fór alla leið í úrslit Sambandsdeildarinnar.
Félagið fær nú sumarið til að stilla saman strengi og er nú ljóst að það verður áfram í efstu deild.
Albert Guðmundsson kom inn af bekknum hjá Fiorentina undir lok leiks, en Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa, sem mun einnig vera áfram í deild þeirra bestu.
Fiorentina er í 15. sæti með 38 stig en Genoa í 14. sæti með 41 stig.
Jamie Vardy og félagar í Cremonese unnu frábæran 3-0 sigur á Pisa og neita að gefast upp í fallbaráttunni.
Vardy skoraði sjötta deildarmark sitt á 31. mínútu, átta mínútum eftir að Rosen Bozhinov, leikmaður Pisa, var rekinn af velli. Federico Bonazzoli bætti við öðru á 51. mínútu og sex mínútum síðar fækkaði í liði Pisa er Felipe Loyola fékk rauða spjaldið.
Þessi sigur Cremonese var gríðarlega stór en þegar tvær umferðir eru eftir er liðið í 18. sæti með 31 stig, einu stigi frá Lecce sem er í öruggu sæti.
Lecce á eftir að mæta Sassuolo og Genoa á meðan Cremonese mætir Udinese og Como. Aðeins auðveldari dagskrá hjá Lecce og meiri líkur en minni á að Cremonese muni falli niður um deild.
Cremonese 3 - 0 Pisa
1-0 Jamie Vardy ('31 )
2-0 Federico Bonazzoli ('51 )
3-0 David Okereke ('86 )
Rautt spjald: ,Rosen Bozhinov, Pisa ('23)Felipe Loyola, Pisa ('57)
Fiorentina 0 - 0 Genoa

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Juventus | 2 | +5 | 6 |
| 1 | Inter | 38 | +54 | 87 |
| 2 | Napoli | 38 | +22 | 76 |
| 2 | Inter | 2 | +5 | 6 |
| 3 | Bologna | 2 | +1 | 4 |
| 3 | Roma | 38 | +28 | 73 |
| 4 | Como | 38 | +36 | 71 |
| 4 | Milan | 1 | +3 | 3 |
| 5 | Napoli | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Milan | 38 | +18 | 70 |
| 6 | Juventus | 38 | +27 | 69 |
| 6 | Chievo | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Atalanta | 38 | +15 | 59 |
| 7 | Sampdoria | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Bologna | 38 | +3 | 56 |
| 8 | Roma | 2 | -1 | 3 |
| 9 | Torino | 1 | 0 | 1 |
| 9 | Lazio | 38 | +1 | 54 |
| 10 | Udinese | 38 | -3 | 50 |
| 10 | Lazio | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Sassuolo | 38 | -4 | 49 |
| 11 | Sassuolo | 1 | 0 | 1 |
| 12 | Parma | 38 | -18 | 45 |
| 12 | Spal | 1 | 0 | 1 |
| 13 | Torino | 38 | -19 | 45 |
| 13 | Genoa | 2 | -2 | 1 |
| 14 | Cagliari | 38 | -13 | 43 |
| 14 | Udinese | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Fiorentina | 38 | -9 | 42 |
| 15 | Atalanta | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Genoa | 38 | -10 | 41 |
| 16 | Benevento | 2 | -2 | 0 |
| 17 | Verona | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Lecce | 38 | -22 | 38 |
| 18 | Cagliari | 1 | -3 | 0 |
| 18 | Cremonese | 38 | -25 | 34 |
| 19 | Crotone | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Verona | 38 | -36 | 21 |
| 20 | Pisa | 38 | -45 | 18 |
| 20 | Fiorentina | 1 | -3 | 0 |