Fotbolti.net
10.05.26 - 20:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Linta hefur ekki áhyggjur - „Ekki í mínum höndum"

Auglýsing
Linta hefur ekki áhyggjur - „Ekki í mínum höndum"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV tapaði gegn KA á Akureyri í Bestu deildinni í dag. ÍBV hefur tapað fimm leikjum í röð og er á botninum með aðeins eitt stig. Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 ÍBV
„Til hamingju KA með sigurinn. Við spiluðum ágætlega, það vantaði upp á á síðasta þriðjungi. Aðeins meiri ákefð, einbeitingu og nákvæmni. Við vorum traustir varnarlega. Leikurinn ræðst á mistökum," sagði Linta.

Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir þegar hann skoraði af löngu færi eftir að Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður ÍBV, hreinsaði boltann fyrir fætur Grímsa.

„Það var óheppni. Mér fannst þetta mögulega brot á markmanninn en ég veit það ekki, ég þarf að sjá þetta aftur. Maður sér mörg svona mörk í fótbolta," sagði Linta.

Linta hefur ekki áhyggjur af stöðu sinni.

„Ég hugsa ekki út í það. Þetta er ekki í mínum höndum, ég hugsa bara um að undirbúa strákana fyrir leiki."

Linta var að snúa aftur á kunnuglegar slóðir en hann spilaði með KA 2006-2007 og með Þór frá 2008-2011.

„Ég hitti nokkra vini sem ég spilaði og vann með, það er alltaf gaman að hitta þá aftur og hressa upp á gamlar minningar," sagði Linta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.