Stjarnan tapaði 2-1 gegn FH á heimavelli í 4. umferð Bestu deildarinnar í dag og var þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson afar svekktur eftir leik.
„Súrt að tapa, súrt að tapa heima. Bara glatað, bara algjörlega glatað að tapa. Gjörsamlega þoli það ekki.“
„Mjög svekktur og sár en engu að síður fannst mér seinni hálfleikurinn í dag öflugur. Ég var ánægður með margt sem við gerðum í seinni hálfleiknum í dag. Fyrri hálfleikurinn var ekki nægjanlega góður.“
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 FH
„Í seinni hálfleik fannst mér við byrja gífurlega vel, skjótum í stöngina og erum að þrýsta og ógna. Erum með öll tök á vellinum að mínu mati.“
FH skoraði hins vegar annað markið gegn gangi leiksins að mati Óskars.
Þeir neyðast til að breyta sínu liði bræðurnir og sú skipting skilaði sér því að það kom þruma úr heiðskíru lofti markið sem þær skora. Mér sýnist það bara vera varamennirnir sem búa til það mark hjá þeim.“
„Þrátt fyrir að vera 2-0 undir þá gáfust stelpurnar ekki upp og við náum í geggjað mark frá Huldu hérna í lokin.“
„Ég er gífurlega stoltur af liðinu mínu fyrir það. Þær gáfust aldrei upp, djöfluðust og börðust fram í rauðan dauðan.“
Stjarnan varð fyrir áfalli rétt fyrir leik þegar Murielle Tiernan meiddist í upphitun.
„Já hún meiddist í upphitun og auðvitað, ég ætla ekki að fela mig bak við eitt eða neitt og ömurlegt að vera með einhverjar afsakanir. En auðvitað þegar leikplanið snýst um að hafa target center og setja upp á hana þá verður það erfitt þegar að við förum út í fyrri hálfleik. Kannski átti ég bara að breyta öllu þegar hún dettur út, mögulega en ég ætla ekki að afsaka mig fyrir það.
„Það er blóðugt þegar hún dettur út. Hún gefur okkur mikið með sínum skrokki og með sínum styrkleika að halda í boltann og það er auðvelt að finna hana. Þannig að það drepur pínu leikplanið í fyrri hálfleik hjá okkur.“
Fleiri lykilmenn glíma við meiðsli.
„Já Anna fékk högg og Jana er ekki í hóp, Birna fer útaf meidd í dag. Það er aðeins farið að þynnast hjá okkur, við erum að lenda í skakkaföllum en sem betur fer erum við með stóran og góðan hóp. Anna María var með þrefaldan ökkla eftir Þór/KA leikinn og við tókum enga sénsa með hana. Okkar fyrirliði og okkar leiðtogi og mjög mikilvægur leikmaður."
„Mér fannst samt Jakobína og Telma í dag bara frábærar. Mér fannst þær ógeðslega flottar saman og bara drullu ánægður með þær, þannig það verður ekkert auðvelt fyrir Önnu Maríu að komast aftur í liðið."
Næsti leikur Stjörnunnar verður í Mjólkubikarnum þar sem þær fara aftur til Akureyrar og segir Óskar liðið eiga óklárað verkefni fyrir fyrir norðan.
„Klárlega, bikarinn náttúrlega bara allt önnur keppni en deildin þannig þetta verður bara verðugt verkefni, Mér finnst við eiga hálfklárað verkefni fyrir norðan og við fáum tækifæri aftur núna, tveimur vikum eftir að við köstum frá okkur sigurleik, til þess að gera betur en það.“
„Gott tækifæri fyrir mig að rúlla vel á liðinu mínu og gefa tækifæri fyrir leikmenn sem hafa fengið minna að spila.“
„Við erum að fá leikmenn í gang sem hafa verið að koma til baka, Hrefna og Erika sem kemur inn í dag. Rósa sem spilar sinn fyrsta leik í meistaraflokki í bestu deildinni. Ég þarf að gefa þeim smjörþefinn af því sem við erum að gera.“
„Ég sjálfur hef aldrei farið lengra en 16. Liða úrslit og það er kominn tími á það að fara lengra en 16. Liða úrslit fyrir mig sjálfan persónulega.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.
























