Fotbolti.net
10.05.26 - 13:43
Brynjar Ingi Erluson

Skoraði mark tímabilsins í grannaslagnum

Daizen Maeda skoraði draumamark gegn Rangers

Daizen Maeda skoraði draumamark gegn Rangers

Canon

Mynd: EPA

Draumur Celtic um að fagna skoska meistaratitlinum lifir góðu lífi eftir að liðið vann frábæran 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Rangers í dag.
Celtic þurfti sigur á erkifjendum sínum til að halda í við Hearts í baráttu um titilinn.

Rangers komst yfir með marki enska táningsins Mikey Moore á 18. mínútu en Yang Hyun-Jun jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Snemma í síðari hálfleik átti Celtic frábæran kafla þar sem Daizen Maeda steig upp og skoraði tvö mörk. Seinna markið verður líklega valið sem mark ársins, en hann átti þessa stórkostlegu hjólhestaspyrnu sem hann stýrði efst í hægra hornið. Ótrúlegt mark hjá japanska landsliðsmanninum.

Sigurinn fleytir Celtic upp í 76 stig, einu stigi á eftir Hearts þegar tvær umferðir eru eftir. Hearts mætir Falkirk á heimavelli í næsta leik á meðan Celtic heimsækir Motherwell, en deildin mun líklega ráðast í lokaumferðinni þegar toppliðin tvö eigast við.

Tómas Bent Magnússon er á mála hjá Hearts og var í lykilhlutverki áður en meiddist á læri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.