Víkingur kaupir Eið Orra (Staðfest) - Kemur eftir tímabilið

Hefur byrjað alla leiki Keflavíkur á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur á sínum ferli spilað með Einherja, Njarðvík, Hetti, KFA og Keflavík.

Víkingur hefur gengið frá kaupum á Eiði Orra Ragnarssyni, leikmanni Keflavíkur, og verður hann hluti af leikmannahópi liðsins eftir að yfirstandandi tímabili lýkur.
Eiður mun klára tímabilið á láni hjá Keflavík og ganga svo í raðir Víkings. Hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2029.
Eiður Orri er Vopnfirðingur sem var með lausan samning í haust og var síðasta vetur orðaður við Val. Hann er hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004. Hann kom til Keflavíkur eftir að hafa spilað með KFA sumarið 2024. Á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk og hjálpaði Keflavík að komast upp úr Lengjudeildinni. Í ár hefur Eiður Orri skorað tvö mörk í deild og bikar og lagt upp þrjú mörk í ellefu deildarleikjum.

„Eiður er gríðarlega fljótur og kraftmikill leikmaður sem er með frábæra fyrstu snertingu. Hann er leikmaður sem getur búið til eitthvað úr engu. Við hlökkum mikið til að vinna með honum á næstu árum," er haft eftir Kára Árnasyni, yfirmanni fótboltamála, í tilkynningu Víkings.
„Það er ánægjulegt fyrir Keflavík að geta haldið Eiði Orra í leikmannahópnum út tímabilið. Fram undan eru mikilvæg verkefni og ljóst að hann mun, líkt og hingað til, leggja allt sitt af mörkum fyrir félagið," segir í tilkynningu Keflavíkur.