Guðjón Pétur: Fannst við gera nóg til að sigla þessu heim

Guðjón Pétur var ósáttur að taka ekki öll 3 stigin.

Mynd: Haukar

Guðjón Pétur var ósáttur að taka ekki öll 3 stigin.

Mynd: Haukar

Haukar heimsóttu Selfoss í dag í 10. umferð 2. deildar karla. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli eftir skemmtilegan og fjörugan leik.
Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og ræddi við Guðjón Pétur að leik loknum.
„Fyrstu viðbrögð eru bara svekkjandi að ná ekki þremur stigum miðað við frammistöðuna. Mér fannst við bara frískir og öflugir stærstan partinn af þessum leik en því miður þá duttu þessi tvö skot sem fóru á markið hjá okkur inn."
„Eitt deflection þarna langt utan af velli og svo eitt fast leikatriði, en svona heilt yfir þá er ég bara ánægður með frammistöðuna í leiknum. Auðvitað er fúlt að fara ekki með fleiri en eitt stig en við erum að mæta hérna á sterkan útivöll og bara tökum þetta stig.´´ sagði þjálfari Hauka svekktur.
Haukar réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og hefðu hæglega getað farið með stærra forskot inn í hálfleikinn en eitt mark.
Já, bara klárlega.
„Við fengum margar góðar stöður og sénsa og skotfæri og auðvitað hefði maður viljað fara með 2-0 allavega inn í hálfleik en vo var ekki. Þeir hafa bara þannig gæði að þeir geta auðvitað refsað öllum liðum en maður tekur svona heilt yfir frammistöðuna sem var bara mjög sterk. Mér fannst við ná að halda þeirra kannski lykilmönnum Jón Daða og Viðari, niðri."
En var þetta sanngjörn niðurstaða?
„Nei, ég get ekki sagt það, ekki miðað við kannski frammistöðuna, en mér fannst við gera nóg til að sigla þessu heim. Því miður vildi boltinn ekki inn. Mér fannst leikmennirnir mínir vera með orku alla leikinn. Varamenn komu sterkir inn og mér fannst við vera að sækja til sigurs hérna í lokin, ekki í hina áttina." sagði Guðjón Pétur að lokum.




