Fotbolti.net
26.06.26 - 22:57
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Davíð Smári: Sköpuðu sér ekki neitt fyrr en þeir skora

Auglýsing
Davíð Smári: Sköpuðu sér ekki neitt fyrr en þeir skora
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

„Bara þungt tap, enn og aftur leikur sem við töpuðum, sem mér finnst við ekki eiga skilið að tapa" sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur eftir 2-0 tap á útivelli gegn Aftureldingu.

Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 0 Njarðvík

„Frábær fyrri hálfleikur, lágu svolítið á okkur í seinni hálfleik. Sköpuðu sér ekki neitt fyrr en þeir skora markið og þá auðvitað reynum við að sækja á þá og tökum áhættu, þess vegna fáum við á okkur annað markið. En bara ótrúlegur ánægður með strákana í dag, mér fannst við gríðarlega vel spilandi og að einhverju leyti með nokkurra yfirburði, sérstaklega í fyrri hálfleik og þess vegna er þetta sárt tap. En við ræddum það fyrir leikinn að við ætlum okkur ekkert endilega að vera betri í níutíu mínútum, við ætluðum að vera betri í mómentum og því miður tókst það ekki í dag" sagði Davíð Smári.

Fannst þér leikurinn vera tvískiptur?

„Já að eitthverju leyti, alveg klárlega. Mér fannst við eins og ég segi virkilega góðir í fyrri hálfleik en mér fannst við líka virkilega góðir í seinni hálfleik. Mér fannst við vera vel skipulagðir og Afturelding var aðeins meira með boltann án þess að meiða okkur neitt. Fyrr en að við förum að eitthverju leyti í óskipulagða pressu, það slitnar aðeins á milli og langur fram. Hélt fyrst að hann væri rangstæður en mér skilst svo að það var ekki."

Ertu ánægður með varnarvinnuna þangað til að Afturelding skorar?

„Já klárlega. Þeir sköpuðu sér ekki neitt, áttu lítið í hornspyrnunum sem þeir hafa verið gríðarlega öflugir í og í raun og veru brutu aldrei línuna hjá okkur. Ég er ótrúlega ánægður með liðið og ótrúlega ánægður með skipulagið á liðinu, mér fannst við gríðarlega góðir með boltann í fyrri hálfleik. Bara synd að hafa ekki náð að skapa meira út úr því, fengum fínar stöður, kannski ekki alveg nægilega afgerandi stöðu til þess að klára leikinn. Mér fannst ofboðsleg orka í Njarðvíkurliðinu í dag og ég er ótrúlega stoltur af strákunum þrátt fyrir þetta tap."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.