Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
   sun 10. júní 2018 09:19
Magnús Már Einarsson
Gelendzhik
Maggi Gylfa: Alltaf búinn að sjá 1-1 í kortunum
Icelandair
Maggi ræðir við Aron Einar Gunnarsson á æfingu Íslands í dag.
Maggi ræðir við Aron Einar Gunnarsson á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrsta sólarhringinn virðist allt vera í toppmálum," sagði Magnús Gylfason í landsliðsnefnd KSÍ við Fótbolta.net í dag fyrir æfingu liðsins í Gelendzhik.

Íslenska liðið var eitt á hóteli í Annecy á EM fyrir tveimur árum en nú hefur liðið hótelið ekki út af fyrir sig. Maggi og aðrir starsfmenn landsliðsins sjá um að hafa keppnir fyrir leikmenn á hótelinu til að stytta stundirnar á milli leikja.

„Það verður mikið af keppnum alla daga. Það verður skák, snóker, pílukast, púttkeppnir og nóg að gera," sagði Maggi.

Sex dagar eru í að Ísland mæti Argentínu í fyrsta leik á HM en sá leikur fer fram í Moskvu á laugardaginn.

„Ég er búinn að sjá alltaf 1-1 í kortunum og ég verð að halda áfram að vona það. Þetta verður stórkostlegur leikur," sagði Maggi. „Það hefur alltaf verið stefnan að fara upp úr riðlinum. Það hefur verið trúin og hún minnkar ekki neitt þegar við komum hingað."
Athugasemdir
banner
banner