Fotbolti.net
10.06.19 - 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

4. deild: Stokkseyri með annan sigurinn í röð

4. deild: Stokkseyri með annan sigurinn í röð
Canon

Mynd: Árborg.is

<b>C-riðill</b>
<b>Fenrir 1-2 Stokkseyri</b>
1-0 Andri Már Ágústsson ('18)
1-1 Örvar Hugason ('45+3)
1-2 Sigurður Kristján Nikulásson ('68)

Fenrir tók í dag á móti Stokkseyri á Hertz vellinum í C-riðli 4. deildar. Fenrir var fyrir leikinn búinn að tapa öllum fjórum leikjum sínum í riðlinum til þessa. Stokkseyri vann fyrir tæpri viku síðan sinn fyrsta sigur þegar liðið skellti Álafossi, 7-0.
Fenrir komst yfir með marki frá Andra Má Ágústssyni á 18. mínútu. Fenrir var mjög nærri því að leiða í hálfleik en Örvar Hugason jafnaði leikinn fyrir Stokkseyri á þriðju mínútu uppbótartíma.

Á 68. mínútu gerði Sigurður Kristján Nikulásson svo annað mark Stokkseyrar og lokamark leiksins. 1-2 sigur Stokkseyrar staðreynd og þeirra annar sigur í röð.

Fenrir er á botni C-riðils, án stiga og Stokkseyri er með sex stig í sjötta sæti riðilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.