Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. júní 2021 10:49
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Kewell tekinn við Barnet (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ástralski þjálfarinn Harry Kewell hefur verið ráðinn sem knattspyrnustjóri Barnet í ensku utandeildinni.

Kewell gerði garðinn frægan sem leikmaður með Leeds, Liverpool og Galatasaray auk þess að hafa verið lykilmaður í landsliði Ástralíu.

Hann lagði skóna á hilluna 2014 og fékk tækifæri með unglingalið Watford í tvö ár áður en hann var ráðinn til Crawley Town.

Kewell gekk ekki sérlega vel í ensku neðrideildunum og hefur stýrt Crawley, Notts County og Oldham Athletic undanfarin fjögur ár.

Kewell er aðeins 42 ára gamall og varð fyrsti Ástralinn til að stýra atvinnumannafélagi á Englandi þegar hann tók við Crawley.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner