Arnar Gunnlaugsson fór mikinn á blaðamannafundi Íslands eftir 3-0 tap liðsins gegn Argentínu í Auburn síðustu nótt.
Lestu um leikinn: Argentína 3 - 0 Ísland
Þegar argentínska liðið skoraði þriðja og síðasta markið þá sundurspilaði liðið það íslenska og kom boltanum að lokum auðveldlega í netið. Arnar var sérstaklega spurður út í þriðja markið.
„Á þessu augnabliki þá hugsar maður bara um að drepa leikmennina,“ sagði Arnar og uppskar mikinn hlátur í salnum, áður en hann hélt áfram,
„svo áttar maður sig á því að svona hlutir koma fyrir. Þetta er leikur smáatriða þessi íþrótt. Ef varnarmaður stígur upp sekúndu fyrr þá er leikmaður þeirra rangstæður. Stundum verður maður að klappa fyrir gæðunum hjá andstæðingnum frekar en að veltast upp úr eigin vansæld. Við sáum margt magnað frá argentínska liðinu í leiknum. Þeirra einnar snertingar fótbolti var magnaður á köflum. Hafandi sagt það, þá áttum við líka góða kafla þar sem við pressuðum þá og unnum boltann en okkur skorti þennan auka metra af hraða, til að geta virkilega refsað þeim þegar við snerum vörn í sókn. Við fengum 2-3 góð tækifæri en ég myndi frekar skrifa ósigurinn á yfirburði Argentínu frekar en að við höfum verið eitthvað slæmir,“ sagði Arnar sem vildi einnig benda á að leikmanna skiptingar hjá báðum liðum í leiknum hafi haft mikil áhrif á gang leiksins. Hann reyndi sitt besta að dreifa mínútum á íslenska hópinn.
„Framan af var fyrri hálfleikur nokkuð sterkur. Það voru erfiðar fyrstu mínútur að spila við frábært lið. Svo komumst við vel inn í leikinn, mig minnir að Mikki [Mikael Egill Ellertsson] hafi fengið dauðafæri og við náðum að halda nokkuð vel í boltann. Við vorum að spila við mjög gott lið og þeir eru þokkalegir í fótbolta líka. Boltinn er svo sannarlega vinur þeirra. Svo oftar en ekki, svipað og kannski gerðist á móti Japan að þegar skiptingarnar byrja að koma þá byrjar leikurinn aðeins að riðlast. Við [landsliðshópurinn] erum búnir að vera lengi saman í þessu ferðalagi okkar, Japan og Bandaríkin, og mér fannst mikilvægt að allir fengu mínútur á vellinum af augljósum ástæðum. Það skiptir leikmenn miklu máli,“ sagði Arnar áður en hann bætti við,
„Það er alltaf ömurlegt að tapa en heilt yfir er ég sáttur við lungann af leiknum. Markmiðið þegar þú spilar á móti svona góðum liðum er að eiga góða spilkafla, að fá færi, halda góðri pressu inn á milli og svo eins og ég sagði við strákana inn í klefa eftir leikinn þá er ótrúlega gaman fyrir þá að fá að mæta þessum allra bestu í sinni íþróttagrein og máta sig við þá. Leikmenn læra af því, litlu hreyfingarnar og litlu smáatriðin. Það er bara staðreynd að leikmenn á þessu getustigi, og það munar 75 sætum á okkur á heimslistanum, þeir bara sparka fastar í boltann, þeir hlaupa aðeins hraðar, stjórna boltanum betur, fara fastar í návígi og þar fram eftir götunum. Þess vegna eru þeir þar sem þeir eru og við erum þar sem við erum. Við verðum að vera minnugir þess, að vegferðin einhvers staðar hefst. Við verðum bara að vera 10% betri í öllum okkar aðgerðum. Þetta var samt ekki leikur til að skammast sín fyrir, alls ekki. Mér fannst lungað af leiknum við sýna nokkuð sterka frammistöðu,“ sagði hann áður en herjað var á Arnar af erlendum blaðamönnum sem vildu heyra skoðanir landsliðsþjálfarans á Lionel Messi og hvernig leikurinn breyttist eftir innkomu Messi.
„Hann er leiðtogi þessa liðs og leiðtogi allrar þjóðar sinnar. Innkoma hans lyfti einnig áhorfendum í stúkunni upp. Allir sem mættu í dag komu augljóslega ekki til að sjá mig á hliðarlínunni, heldur til þess að sjá Messi spila. Innkoma hans breytti mörgum smáatriðum, þeir byrjuðu að spila tiki-taka fótbolta á meðan við hlupum í hringi og urðum ringlaðir. Það breytti flæðinu í leiknum og það sama á við um hinar skiptingar. Þeir skiptu mörgum góðum leikmönnum inn á í hálfleik. Þetta er það sem fylgir því að vera heimsmeistari, er að þeir eru með tvo heimsklassa leikmenn í hverri einustu stöðu. Ég er hins vegar mjög stoltur af mínu liði, við gáfum allt í þetta og spiluðum vel þegar við héldum í boltann. Mér fannst við gefa góða mynd af okkur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands á blaðamannafundi liðsins.

