Marokkóski landsliðsmaðurinn Brahim Díaz er eftirsóttur af ýmsum félagsliðum í Evrópu, sérstaklega á Ítalíu, en ætlar að vera áfram hjá Real Madrid.
Brahim vill berjast um sæti í byrjunarliðinu undir stjórn José Mourinho. Hann er 26 ára gamall og kom að 11 mörkum í 42 leikjum á nýliðnu tímabili, en í heildina hefur hann komið með beinum hætti að 52 mörkum í 163 leikjum fyrir Real Madrid.
Juventus er meðal áhugasamra félaga en Brahim er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Real.
Hann er í landsliðshópi Marokkó sem fer á HM og á 14 mörk í 26 landsleikjum, eftir að hafa áður spilað 28 leiki fyrir yngri landslið Spánar og einn A-landsleik.
27.05.2026 20:13
Hakimi í marokkóska hópnum þrátt fyrir meiðsli





