Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:13
Elvar Geir Magnússon
Hakimi í marokkóska hópnum þrátt fyrir meiðsli
Mynd: EPA
Achraf Hakimi hefur verið valinn í marokkóska landsliðshópinn fyrir HM þrátt fyrir að hafa meiðst með Paris St-Germain í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Bayern München í Meistaradeildinni.

Hakimi hefur ekki spilað síðan 28. apríl en var myndaður á æfingu með PSG í vikunni, liðið er að búa sig undir að mæta Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardag.

Marokkó mætir á HM sem ríkjandi Afríkumeistari en liðinu var dæmdur sigur í keppninni eftir að senegalska liðið, sem vann úrslitaleikinn, gekk af velli.

Marokkó er með Skotlandi, Brasilíu og Haítí í riðli í sumar.

Landsliðshópur Marokkó:

Markverðir: Yassine Bounou (Al Hilal), Munir Mohamedi (RS Berkane), Ahmed Tagnaouti (Royal Armed Forces)

Varnarmenn: Noussair Mazraoui (Manchester United), Anass Salah-Eddine (PSV Eindhoven), Youssef Belammari (Al Ahly), Nayef Aguerd (Marseille), Chadi Riad (Crystal Palace), Issa Diop (West Ham United), Redouane Halhal (KV Mechelen), Achraf Hakimi (Paris St-Germain), Zakaria El Ouahdi (Genk)

Miðjumenn: Samir El Mourabet (Strasbourg), Ayyoub Bouaddi (Lille), Neil El Aynaoui (Roma), Sofyan Amrabat (Real Betis), Azzedine Ounahi (Girona), Bilal El Khannouss (Stuttgart), Ismael Saibari (PSV Eindhoven)

Sóknarmenn: Abdessamad Ezzalzouli (Real Betis), Chemsdine Talbi (Sunderland), Soufiane Rahimi (Al Ain), Ayoub El Kaabi (Olympiacos), Brahim Diaz (Real Madrid), Yassine Gessime (Strasbourg), Ayoub Amaimouni-Echghouyabe (Eintracht Frankfurt)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner