Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. júlí 2020 12:10
Magnús Már Einarsson
Henderson frá út tímabilið - Klár í næsta tímabil?
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, mun missa af síðustu fjórum leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Henderson meiddist á hné eftir samstuð við Yves Bissouma leikmann Brighton í leik liðanna í fyrrakvöld.

Meiðslin litu illa út en Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti í dag að tímabilið sé búið hjá Henderson.

Klopp er þó jákvæður á að Henderson verði klár fyrir næsta tímabil sem hefst líklega 12. september næstkomandi.

„Þetta voru bestu mögulegu fréttirnar sem við gátum fengið af þessum slæmu meiðslum," sagði Klopp en Henderson þarf ekki að fara í aðgerð vegna meiðslanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner